Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 240/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 240/2022

Fimmtudagurinn 25. ágúst 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. maí 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 64.367 kr. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 4. maí 2022. Með bréfi, dags. 6. maí 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Sú beiðni var ítrekuð þann 21. júní 2022. Með bréfi, dags. 23. júní 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli hennar og því myndi hin kærða ákvörðun verða afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. júní 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Því var fylgt eftir með símtali starfsmanns úrskurðarnefndar velferðarmála 9. ágúst 2022 en kærandi svaraði ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því myndi hin kærða ákvörðun verða afturkölluð. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum